Ásmundur Sveinsson - Dýrkun (1940)
Allnokkur verk Ásmundar sýna tengsl móður og barns og er hlutverk móðurinnar áberandi. Konan var Ásmundi mikill innblástur og birtast ólíkar hliðar hennar í mörgum verka hans. Í Dýrkun birtist konan sem hin göfuga móðir sem umvefur barn sitt kærleika og vernd. Verkið er eitt af síðustu verkunum sem Ásmundur mótaði á heimili sínu við Freyjugötu í Reykjavík.
- Upplag: 200 (númeruð)
- Stærð: hæð 39 cm, breidd 34 cm, dýpt 24 cm
- Þyngd: u.þ.b. 6.600 gr.
- Efni: Gifs
- Brothætt! Einungis hægt að sækja!
- Vinsamlegast hafið samband við verslunina til að fá frekari upplýsingar.