Anna Jóa, Hamir / Sheaths
Anna Jóa, Hamir / Sheaths
Anna Jóa, Hamir / Sheaths

Anna Jóa, Hamir / Sheaths

5.200 kr
5.200 kr
 

Bókin Hamir byggir á samleik ljóðrænna texta og teikninga og vatnslitamynda af fatnaði eftir Önnu Jóu. Verkin fjalla um klæði og hami hvers konar og tengsl þeirra við híbýli og tímans rás. Meðfram þessum tengslum við persónulegt rými og hversdagslegan veruleika, fela verkin í sér víðtækari könnun og tjáningu.  

Hugsanir listamannsins um tímann og staði fléttuðust saman við gerð myndanna og rötuðu á blað sem textar sem í víðari skilningi fjalla um sköpunarferlið og um myndbreytingareðli umhverfis og hugarheima. 

Ljóðatextar birtast einnig í enskri þýðingu Söruh Brownsberger og í bókinni er eftirmáli eftir Jóhannes Dagsson á báðum málunum. 

  • Mjúkspjalda 
  • 70 síður 
  • Myndskreytt 
  • Tungumál: íslenska og enska 
  • Útgáfuár: 2020 
  • Útgefandi: Anna Jóa/Gallerí Skuggi 
  • Stærð: 26 cm x 18,5 cm 
  • Þyngd: 315 g