
Kristín Gunnlaugsdóttir, Ósagt / Unspoken
Sýningarskrá sem gefin er út í tengslum við yfirlitssýningu á verkum Kristínar Gunnlaugsdóttur í Listasafni Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum árið 2025.
Í bókinni eru ljósmyndir af sýningunni, myndir af verkum ásamt því að fjallað er um feril Kristínar í samhengi listasögunnar og samtímans.
Markús Þór Andrésson safnstjóri Listasafns Reykjavíkur er sýningarstjóri sýningarinnar og ritar grein um listamanninn. Aðrar greinar eru eftir Jón B. K. Ransu og Gunnlaug Guðmundsson stjörnuspeking. Sigrún Inga Hrólfsdóttir listamaður og rithöfundur tók viðtal við Kristínu.
- Harðspjalda
- 160 blaðsíður
- Myndskreytt
- Tungumál: íslenska og enska
- Útgáfuár: 2025
- Útgefandi: Listasafn Reykjavíkur
- Stærð: 18 cm x 24,5 cm
- Þyngd: 625 g