URÐ Volcanic Sand Soap

URÐ Volcanic Sand Soap

2.300 kr
2.300 kr
 

Sápa með svörtum sandi

Léttskrúbbandi sápa með svörtum sandi og hreinum ilmolíum.

Steinasápurnar frá URÐ eru handgerðar. Þær eru kaldpressaðar úr hreinum ilmolíum og innihalda íslensk hráefni. Lögun þeirra minnir á brotna hrafntinnu og er táknræn fyrir hina viðkvæmu íslensku náttúru. Hrafntinnan er friðuð og stundum nefnd steinn sannleikans.

Sápurnar eru í taupokum sem hægt er að nota ef ferðast á með þær. Sápurnar eru með áföstum spotta til að auðvelda notkun. Sápurnar hafa hver sína sérstöku virkni.

  • Með piparmintu & lavender
  • Framleitt á Íslandi
  • Innihaldsefni: Kókosolía (Cocos Nucifera Oil), vatn (Aqua), repjuolía (Brassica Napus Linnaeus), Shea smjör (Butyrospermum Parkii), svartur eldfjallasandur og hreinar ilmolíur