Sleggja
Sleggja er kertastjaki innblásinn af verkinu Járnsmiðurinn sem Ásmundur Sveinsson myndhöggvari vann í Kaupmannahöfn árið 1936. Sleggja gefur notandanum tækifæri á að máta sig við verkið og setja sig í stellingar styttunnar sem fangar augnablikið þar sem járnsmiðurinn hallar sér fram á steðjann.
- Hönnuður: Hanna Dís Whitehead
- Stærð kertastjaka: ca. 12,5 x 5 x 5 cm
- Stærð kertis: ca. 37 x 4,5 x 3 cm
- Samanlögð þyngd: ca. 1152 g
- Efni: Jarðleir með glerungi
- Kerti: Bývax frá kertagerð Sólheima
- Látið kerti aldrei loga án eftirlits
- Ekki láta kertið brenna alveg niður í stjakann
- Þrífið kertastjakann með rökum klút
Ásmundur Sveinsson (1893-1982) var einn af frumkvöðlum íslenskrar höggmyndalistar. Listaverk hans endurspegla íslenska sagnahefð, samfélag og náttúru. Mörg verka hans eru hluti af almannarými og þekkt í borgarlandinu. Ásmundur var alla tíð þeirrar skoðunar að listin ætti að vera hluti af daglegu lífi fólks.