Jónsmessunótt, 1940
Jónsmessunótt fjallar á einstakan hátt um drauma og minningar um ást og munúð. Tveir líkamar fléttast saman á kærleiksríkan hátt í órjúfanlega heild; form þeirra tala saman og segja sögur. Verkið ber skýr höfundareinkenni Ásmundar frá fyrri hluta ferils hans - massíf heild þar sem hvergi loftar á milli líkamshluta.
- Stærð: Hæð 12 cm, breidd 10 cm, dýpt 7 cm
- Þyngd: U.þ.b. 630 g
- Efni: Gifs
- Brothætt
- Vinsamlegast hafið samband við verslun til að fá frekari upplýsingar