Menningarkort Reykjavíkur er þinn aðgangur að menningarlífi borgarinnar. Innifalið í kortinu eru 14 söfn, 50+ sýningar, 300+ viðburðir, bókasafnsskírteini og fjöldi tilboða.
Menningarkorthafar geta í hverjum mánuði boðið með sér gesti á það safn sem er tilgreint er í mánaðartilboði Menningarkortsins. Þá veitir kortið ýmis sérkjör og afslætti hjá samstarfsaðilum kortsins.
Menningarkortið er hluti af Reykjavíkurkortinu. Settu saman þitt kort og veldu það sem hentar þér. Reykjavíkurkortið er þinn aðgangur að því besta sem borgin hefur upp á að bjóða. Þú velur hvað fer á kortið og getur haft það allt í símanum: sundkort, Menningarkort, Árskort Listasafns Reykjavíkur, Ylströndin í Nauthólsvík, Fjölskyldu- og húsadýragarðurinn eða líkamsrækt í Klébergslaug.
Þitt er valið!
Nánari upplýsingar á vef Menningarkortsins: Menningarkort Reykjavíkur | Reykjavik