
Ólga - Swell
Sýningin Ólga og þessi veglega útgáfa sem fylgir henni er afrakstur rannsóknar Beckyar Forsythe sem gegnt hefur tímabundinni rannsóknastöðu við Listasafn Reykjavíkur. Becky hefur rannsakað hlut kvenna í íslenskri listasögu í samstarfi við námsbraut í listfræði við Háskóla Íslands. Ólga er þriðja og síðasta verkefnið sem kemur til framkvæmdar í því samhengi.
Fjallað er um frumkvæði kvenna í íslenskri myndlist á níunda áratugnum og viðtöl við listamenn sem taka þátt í sýningunni.
Heiða Björk Árnadóttir fjallar um söfnun íslenskra listasafna á myndlist kvenna 1970−1995
Listamenn sem eiga verk á Ólgu eru:
Ásta Ólafsdóttir, Brynhildur Þorgeirsdóttir, Erla Þórarinsdóttir, Gerla – Guðrún Erla Geirsdóttir, Harpa Björnsdóttir, Margrét Jónsdóttir, Rúna Þorkelsdóttir, Rúrí og Svala Sigurleifsdóttir
Ritstjóri Editor: Becky Forsythe
- Mjúkspjalda
- 256 blaðsíður
- Myndskreytt
- Tungumál: enska og íslenska
- Útgefið: 2025
- Útgefandi: Listasafn Reykjavíkur
- Stærð: 27,5 cm x 21,5 cm x 2cm
- Þyngd: 1.185 g