Ásmundur Sveinsson - Jónsmessunótt (1940)
Jónsmessunótt fjallar á einstakan hátt um drauma og minningar um ást og munúð. Tveir líkamar fléttast saman á kærleiksríkan hátt í órjúfanlega heild; form þeirra tala saman og segja sögur. Verkið ber skýr höfundareinkenni Ásmundar frá fyrri hluta ferils hans - massíf heild þar sem hvergi loftar á milli líkamshluta.
- Upplag: 200 (númeruð)
- Stærð: hæð 27 cm, breidd 25 cm, dýpt 18 cm
- Þyngd: 4.700 gr.
- Efni: Gifs
- Ath.: Brothætt! Engin sending, einungis hægt að sækja!
-
Important: Fragile! No shipping, for pickup only!




