Árskort Listasafns Reykjavíkur
Árskortið er 12 mánaða aðgöngumiði á Listasafn Reykjavíkur.
Árskortið veitir ókeypis aðgang að öllum sýningum í Hafnarhúsi, á Kjarvalsstöðum og í Ásmundarsafni.
Listasafn Reykjavíkur býður upp á fjölbreytt úrval spennandi sýninga og viðburða allt árið um kring.
Árskortshafar fá boð á sérstaka viðburði á vegum safnsins með leiðsögn og upplýsingum um myndlist og listamenn. Að auki fá árskortshafar 10% afslátt í safnverslunum Listasafnsins.