Í bókinni Jór! – Hestar í íslenskri myndlist er dregin upp mynd af því margvíslega hlutverki sem hesturinn hefur gegnt hérlendis í örum þjóðfélagsbreytingum síðustu 100 ára eða svo.
Jafnframt spanna verkin nánast alla sögu og þróun íslenskrar myndlistar á þessum sama tíma, með fjölbreytilegum stefnum. Þetta er heillandi heimur sem sýnir bæði raunverulega hesta og táknræna, myndir sóttar í íslenskan sagnaheim, goðafræði og veruleika listamannanna. Aðalsteinn Ingólfsson rekur þessa sögu í afar læsilegum texta og skreytir gömlum myndum en þó einkum listaverkum þekktra íslenskra listamanna síðustu aldar og frammá þessa.
- Harðspjalda
- 112 blaðsíður
- Myndskreytt
- Tungumál: íslenska
- Útgefandi: Listasafn Reykjavíkur og Bókaútgáfan Opna
- Stærð: 22,5 cm x 26,5 cm
- Þyngd: 820 g