Иorður og niður- samtímalist á norðurslóðum er sýningarskrá sem fylgir samnefndri, alþjóðlegri listasýningu. Í bókinni er í máli og myndum fjallað um listamennina sem taka þátt og verk þeirra auk þess sem þrír gestahöfundar rita fræðigreinar. Myndlistarsýningin er samstarfsverkefni þriggja listasafna, Portland Museum of Art í Maine-fylki í Bandaríkjunum, Bildmuseet í Umeå í Svíþjóð og Listasafns Reykjavíkur á Íslandi og verður sýnd á þeim stöðum á árunum 2022-23. Sýningin samanstendur af nýjum verkum eftir 30 listamenn sem takast á við þær breytingar sem eru að verða á samfélagi, náttúru og lífríki í upphafi 21. aldarinnar og eru að stórum hluta tilkomnar vegna loftslagsbreytinga. Sýningarstjórar eru Jaime DeSimone, Anders Janson og Markús Þór Andrésson og skrifa þau ítarlega um listamennina í sýningarskránna. Að auki ritar Andri Snær Magnason um loftslagsmál, Elizabeth Bischof um sögu kortlagningar á norðurslóðum og Åsa Ossbo um álitamál í samskiptum sænskra yfirvalda og samískra frumbyggja.
- Harðspjalda
- 144 blaðsíður
- Myndskreytt
- Tungumál: íslenska og enska
- Útgáfuár: 2021
- Útgefandi: Listasafn Reykjavíkur
- Stærð: 18 cm x 24,5 cm
- Þyngd: 625 g