Sýningarskrá sem gefin var út í tengslum við yfirlitssýningu á verkum Sigurðar Árna Sigurðssonar í Listasafni Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum árið 2020. Í bókinni eru ljósmyndir af sýningunni, myndir af verkum og textar um Sigurð Árna og viðfangsefni hans.
Michel Gauthier sýningarstjóri við Samtímalistasafn Frakklands í Centre Pompidou í París skrifar ítarlega fræðigrein um Sigurð Árna og list hans, Auður Ava Ólafsdóttir rithöfundur ræðir við listamanninn um ferilinn og Markús Þór Andrésson sýningarstjóri skrifar um þróun ferilsins.
- Harðspjalda
- 167 blaðsíður
- Myndskreytt
- Tungumál: enska og íslenska
- Útgáfuár: 2020
- Útgefandi: Listasafn Reykjavíkur
- Stærð: 5 x 17 cm x 25 cm
- Þyngd: 700 g